Other
"Vintage" Búdda plakat
Fljótandi á lótusblómi með tónlistina í höndunum og dularfullt bros.
Fallegt Tulipop "vintage" plakat, en myndin af Búdda var teiknuð af Signýju Kolbeinsdóttur, skapara Tulipop heimsins, nokkru áður en Tulipop var formlega stofnað. Búdda sást m.a. í Tulipop bókinni "Mánasöngvarinn" sem kom út árið 2012, en hefur lítið sést síðan. Hver veit nema hann birtist á fleiri vörum áður en langt um líður?
Þetta er hágæða plakat, prentað á þykkan og endingargóðan mattan pappír. Bættu töfrum við hvaða rými sem er.
Þykkt pappírs: 10,3 mil
Giclée-prentgæði
VARA PRENTUÐ EFTIR PÖNTUN
Athugaðu að þessi vara er prentuð eftir pöntun af samstarfsaðila okkar í Evrópu og send þaðan til Íslands. Vörur sem eru prentaðar eftir pöntun eru sendar beint frá Evrópu á næsta pósthús. Þú greiðir því ekki virðisaukaskatt af vörunni hjá okkur, heldur þegar þú færð vöruna afhenta hjá Póstinum, og einnig tolla ef við á.




