Collezione: Um Tulipop LED lampa

Um Tulipop LED lampa

Hjá Tulipop leggjum við mikla áherslu á öryggi og gæði. Okkur hefur borist ein tilkynning sem bendir til mögulegs öryggisgalla í USB-millistykkjum sem fylgdu Tulipop LED lömpum, bjóðum við því öllum eigendum lampanna að fá nýtt millistykki án endurgjalds.

Til að gæta fyllsta öryggis þá hvetjum við eigendur Tulipop LED lampa til að hætta notkun á gömlu millistykkjunum og farga þeim. Hægt er að panta nýtt USB-millistykki hér. Við sendum þér það án endurgjalds á næsta Dropp afhendingarstað.

Vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóst, tulipop@tulipop.com, ef einhverra frekari upplýsinga er óskað í tengslum við þetta.